Kobe Bryant fór á kostum í 111-98 sigri LA Lakers gegn Philadelphia á útivelli. Þetta var annar sigurleikur Lakers í röð en slíkt hefur liðið ekki afrekað í fjórar vikur. Bryant skoraði 34 stig og tók 16 fráköst en það er persónulegt met hjá kappanum.
↧